Trójumenn-Rómverjar-Júdah
William R. Finck Jr. 2007
Í Biblíunni, í fyrstu Konungabók 4:31, er viska og speki Salómons sögð meiri en margra annara manna:" Og hann var allra manna vitrastur, vitrari en Etan Esrahíti og Heman og Kalkól og Darda Mahólssynir, og hann var nafnfrægur með öllum þjóðum umhverfis." En eini staðurinn annar í Biblíunni þar sem þessi stórmenni er að finna er fyrsta Króníkubók. 2:6, þar sem við lærum að að Eðan, Heman,Kalkol,Darda, og Simri voru allir synir Sera, sonar Júda.
Í fyrstu Mósebók 46:12 lærum við að þegar Jakob fór til Egyptalands, hafi Sera farið einnig, en engir synir með honum. Þó að hann hafi eflaust flutt konu,eða konur sínar með sér(46:26), og Fares flutti tvo syni sína með sér, fór Sera til Egyptalands án afkomenda. Löngu síðar, í brottförinni frá Egyptalandi, sjáum við að afkomendur Sera voru með Ísraelsmönnum(Num. 26:20). Á meðan manntals skrárnar í eyðimörkinni, nefna ættkvíslir sona Fares(Num. 26:21), eru synir Sera, sem hljóta að hafa verið merkismenn, ekki nefndir fyrir sig.
- Read more about Trójumenn-Rómverjar-Júdah
- Log in to post comments



Kórinþumenn voru Dórar. Dórar voru þjóðflokkur sem var sagður hafa ráðist inn á Grikkland, samkvæmt öllum fornum heimildum, stuttu eftir Trójustríðin. Grikkir sem byggðu allan Peloponnes skagann og einnig meginlandið fyrir tíma innrásar Dóra, kölluðust "Danaanar"(Danai), og "Akkea" kallaði Hómer þá. Sagnfræðingar dagsins í dag halda því fram að Dórar hafi komið "úr norðri" og benda á Dórísku Tetrapolis, fjórar borgir (Erineus,Boeum,Pindus og Cytinium, sjáið Strabó 9.4.10) sem liggja vestur af Fókis og norður af Delfí á meginlandi Grikklands, sem vitnisburð um þetta. Þessir sagnfræðingar halda einnig að allir Aríar hafi komið "að norðan" inn í fornöld á einum tíma eða öðrum, en þeir hafa stanslaust rangt fyrir sér. Hómer fær mikinn trúnað hjá Strabó fyrir þekkingu sína og nákvæmni þegar hann lýsir íbúum οἰκουμένη og svæðana þar sem þeir bjuggu, og landfræðingurinn vitnar sifellt í skáldið. Hómer lýsti öllum íbúum Grikklands, og þjóðum og stöðum sem Grikkjum var kunnugt um á þeim tíma er hann ritaði um. Hómer minnist ekkert á borgir Tetrapolis, né af Dórum á Grikklandi, né neinstaðar í norðri.





